Skilmálar v. miðakaupa
Miðasala Hvítahússins er rekin af Viðburðastofu Suðurlands ehf. kt. 501220-0350. E1. að Hrísmýri 6, 800 Selfossi.
- Vinsamlega athugaðu miðana þína, hvort réttar upplýsingar komi þar fram. Ekki er alltaf hægt að laga mistök við miðakaup eftir að gengið hefur verið frá greiðslu.
- Eftir að þú hefur keypt miða hjá viðburð, í gegnum netið, hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum hjá Hvítahúsinu, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum eða skriflegri beiðni um endurgreiðslu átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að skipta miðanum fyrir annan viðburð, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.
- Miðinn þinn eða miðar verða samstundis gerðir ÓGILDIR ef þeir eru endurseldir eða BOÐNIR TIL SÖLU.
- Miðar á viðburðinn verða sendir í tölvupósti þegar gengið hefur verið frá greiðslu. Rétt skráning á netfangi kaupanda er á ábyrgð kaupanda.
- Ekki er tekin ábyrgð á ef að viðburður fellur niður vegna óviðráðanlegra orsaka eins og t.d náttúruhamfara, óveðurs eða ófærðar.
- Aðgöngumiði á viðburð tryggir ekki öruggar ferðir í samgöngum. Miði fæst ekki endurgreiddur falli niður ferðir hjá samgönguaðilum.
- Ef keyptur miði er áframseldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir einhvern annan en aðila sem tengist viðburði beint, áskilur Hvítahúsið sér rétt til þess að ógilda miðann og neita handhafa inngöngu á viðburð.
- Seljandi miða eða aðstandendur viðburðar taka ekki á sig aukna ábyrgð en leiðir af lögum s.s. vegna meiðsla og annars tjóns sem kaupandi verður fyrir á viðburði.
- Aðstandendur viðburðar, Hvítahúsið og Viðburðastofa Suðurlands ehf. taka enga ábyrgð á einkamunum eiganda miða á meðan viðburði stendur.
- Með því að samþykkja skilmálana leyfir þú myndartökur á og við tónleikasvæði sem nota má til markaðsetningar eða annara nota.
- Dagsetning og tímasetning viðburða gæti breyst án fyrirvara.
- Til þess að miði sé gildur þarf miðakaupandi ávallt að geta sýnt eftirfarandi:
- Miðann eða miðana (útprentaðan eða í síma).
- Debet- eða kreditkortið sem var notað í kaupferlinu eins og kemur fram á bókunarstaðfestingu
- Bókunarstaðfestingu (sem send er í tölvupósti við kaup).
- Gilt skilríki með mynd sem passar við nafnið/kt. á bókunarstaðfestingunni og kredit/debet kortinu.
- Ég veiti Hvítahúsinu leyfi til að geyma persónurekjanlegar upplýsingar um miðakaupin. Upplýsingar þessar verða ekki afhentar þriðja aðila. Hvítahúsið geymir ekki kreditkorta upplýsingar sem gefnar eru við kaup á miðum, greiðslur fara í gegnum öruggt vefsvæði Valitor.
- Hvítahúsið leggur ríka áherslu á öryggi og trúnað þegar um er að ræða upplýsingar sem snerta einstaklinga í viðskiptum við fyrirtækið og brýnir fyrir starfsmönnum að halda þann trúnað. Brot á trúnaðarskyldu varðar áminningu og/eða uppsögn. Meðferð persónuupplýsinga Hvítahússins er í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
- Með því að skrá netfangið þitt í kaupferlinu samþykkir þú að fá senda tölvupósta frá Viðburðastofu Suðurlands. Upplýsingar um afskráningu eru neðst í póstum sem eru sendir í markaðstilgangi.
- Vörukaup þessi er í samræmi við íslenska lög og rísi mál vegna þeirra er það rekið fyrir Héraðsdóm Suðurlands.
- Fyrirspurnir varðandi miðakaup skal senda á hvita@hvita.is og láta númer pöntunar fylgja með sé spurt um miðakaup sem þegar hafa verið gerð.
Rafræn vöktun öryggismyndavéla
Á hátíðarsvæðum við Hvítahúsið og á öðrum viðburðum tengdum Kótelettunni eða Viðburðastofu Suðurlands eru notaðar stafrænar öryggismyndavélar þar sem vöktun er talin nauðsynleg á grundvelli öryggis eða eignavörslu. Tilgangur rafrænnar vöktunar er að auka öryggi starfsfólks og hátíðargesta og varna því að eigur séu skemmdar eða þeim stolið. Öll meðferð persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun er í samræmi við 8. gr. laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 90/2018. Persónuupplýsingar sem verða til við rafræna vöktun eru geymdar í 30 daga nema nauðsyn krefst lengri varðveislu, einkum tengt mögulegum dómsmálum. Framkvæmdastjórn Kótelettunnar, öryggisstjóri Kótelettunnar og tæknistjóri Kótelettunnar hafa fullan aðgang að rafrænum upptökum. Berist beiðni um afrit af gögnum úr öryggismyndavélum frá lögreglu vegna mögulegra brota eða meintra brota á hátíðarsvæði, er lögreglu afrit veitt undantekningalaust. Aðrir aðilar eiga ekki rétt á afritum af upptökum. Persónuvernd og/eða lögregla getur óskað eftir að afmarkað myndefni sé geymt lengur en í 30 daga. Kótelettan áskilur sér rétt til að miðla upptökum í þeim tilgangi að Kótelettan geti stofnað, haft uppi og eftir atvikum varið réttarkröfur.

Skilmálar vegna kaupa á tjaldsvæðismiða – Kótelettan
1. Aðgangur og umsýsla
Tjaldsvæðið við Suðurhóla er rekið í tengslum við tónlistarhátíðina Kótelettuna og er í umsjón Handknattleiksdeildar UMFS.
2. Aldurstakmark og aðgangur
18 ára aldurstakmark gildir á tjaldsvæðinu.
Gestir yngri en 18 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamanni til að fá aðgang.
Umsjónaraðilar áskilja sér rétt til að krefjast gildra skilríkja við afhendingu armbands eða ef upp koma vafamál.
3. Miðakaup og afhending
Með kaupum á miða samþykkir kaupandi þessa skilmála í heild sinni.
Greitt er fyrir aðgang rafrænt og armbönd fást afhent við komu gegn framvísun rafræns aðgöngumiða með QR kóða, á opnunartíma.
Miðakaupum fylgir 14 daga skilaréttur skv. lögum nr. 46/2000, nema viðburðurinn eigi sér stað innan þeirra tíma, sbr. 10. gr. laganna.
Miðar eru ekki endurgreiddir ef gestur mætir ekki, missir af viðburði eða er vísað af svæðinu vegna brota á reglum.
4. Almennar reglur á tjaldsvæðinu
Gestir skulu sýna kurteisi og virðingu í garð annarra gesta, starfsfólks og nærliggjandi byggðar.
Ró skal ríkja á svæðinu frá kl. 24:00 til 07:00. Tónlist og hávaði eru ekki leyfð á þessum tíma.
Notkun opins elds er stranglega bönnuð, þar með talið kveikjanleg eldstæði.
Aðgát skal höfð við notkun einnota grilla vegna íkveikjuhættu. Notkun þeirra skal fara fram á steyptu eða óbrennanlegu undirlagi, aldrei í námunda við tjöld eða gróður.
Vélknúin ökutæki eru ekki leyfð innan tjaldsvæðisins. Bílastæði eru afmörkuð utan svæðisins.
Gæludýr eru ekki leyfð á svæðinu.
Gestir bera ábyrgð á umgengni sinni og skulu flokka allt rusl í tilgreindar tunnur og gáma.
Salernisgámar eru til staðar á svæðinu.
Aðgangur er að vatni, en aðgengi að rafmagni er mjög takmarkað.
5. Viðurlög og ábyrgð
Gestir eru skuldbundnir til að fylgja reglum tjaldsvæðisins og sýna háttvísi í samræmi við lög og góðar venjur.
Við alvarleg eða ítrekuð brot, t.d. vegna eignaspjalla, ofbeldis, ölvunarástands eða hættulegrar hegðunar, áskilja rekstraraðilar sér rétt til að vísa gestum af svæðinu án endurgreiðslu og, eftir atvikum, tilkynna mál til lögreglu eða annarra yfirvalda.
Allt tjón sem gestir valda á aðstöðu, búnaði eða eigum annarra gesta getur leitt til bótaskyldu og verður tilkynnt til viðeigandi aðila.
6. Persónuvernd og öryggi
Öryggismyndavélar kunna að vera notaðar á svæðinu í öryggisskyni. Meðferð myndefnis er í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd.
Með kaupum á miða samþykkir þú mögulega myndbirtingu í tengslum við markaðsefni Kótelettunnar, ef myndataka fer fram á svæðinu.
7. Takmarkanir á ábyrgð
Tjaldsvæðismiði veitir aðgang að tjaldsvæði, en ekki tryggingu fyrir ferðum, öryggi í samgöngum eða inngöngu á tónleikasvæði.
Viðburðastofa Suðurlands og/eða Handknattleiksdeild UMFS bera ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af náttúruhamförum, veðri eða hegðun annarra gesta.
Ekki er borin ábyrgð á einkamunum gesta. Gestir bera sjálfir ábyrgð á verðmætum sínum.
8. Upplýsingar og samskipti
Opnunartími: Föstudagur kl. 15:00 – sunnudagur kl. 18:00 yfir hátíðarhelgi
Sími tjaldsvæðis: 788-3456
Netfang: tjalda@kotelettan.is
Neyðarnúmer: 112
